Danaveldi

20.12.2006 22:53:29 / tage

Á heimleið

Þá er maður bara að koma heim. Já eftir 3 daga kem ég heim til Íslands. Það er búið að setja fríið uppí exel og sýnist mér að ég sé í 7 jólaboðum á 3 dögum. Og svo á að gera hitt og þetta sem verður að planleggja.

Annars er maður bara búinn að vera að kaupa jólagjafir og skvetta í sig bjór og hef ég sett upp jöfnu sem gengur allveg upp. Ein jólagjöf = Einn bjór. Þannig að maður er að skríða hér heim á kvöldin með laskaðar jólagjafir

Jæja við sjáumst seinna, lesandi góður.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 16:30:01 / tage

Ísland bezt í heimi ???

Jæja þá fer að styttast í að maður kemur heim til Ísland í jólafrí. Manni er farið að hlakka til því að Svanhildur er að klára mig. Eftir að ég kláraði skólan hef ég verið að mála, skúra, þvo þvott, vaska upp og kaupa inn.

Þetta er allt að breytast, eftir að við kallarnir byrjuðum að taka þátt í kvennabaráttunni höfum við snúið öllu við. Konurnar hafa áttað sig á því hvað það er þæginlegt að þurfa ekki að sjá um heimilið.

Núna eru konur byrjaðar að nota sér þessa réttindabaráttu út í öfgar og er bara spurning hvenær karlar missa kosningaréttinn.


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 10:21:23 / tage

Prófið búið

Á þessari stundu er ég að bíða eftir einkun fyrir prófið mitt. Maður fær nefnilega einkun sama dag og prófið er. Mér gekk bara ágætlega að kynna verkefnið. En ég er samt ekkert rosalega bjarstýnn á að fá háa einkun, þar sem að hópmeðlimir mínir eru hel-slappir. En við sjáum til.

Hér kemur smá gáta og gaman væri að þið mynduð senda inn nokkrar líka.

Spurning dagsin. Vitnað er í bíomynd : "Ég tvista til að gleyma" hver er myndin?


» 6 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 25746
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010