03.12.2008 12:54:25 / tage
Gamall langt fyrir aldur fram
Þetta hefur verið erfið vika því á sunnudaginn gekk ég endanlega frá bakinu á mér. Þannig standa mál að ég hef verið að vinna sem smiður sem hefur kostað nokkra þreytu í blessaða bakinu á mér.
Svo fór ég að keppa í handbolta á sunnudaginn og eftir allveg 2 mín. lagðist ég til jarðar fastur í 90° beygju. Svanhildur kom að sækja drenginn og fór með mig á Gentofte spítala þar sem mér var gefið 6 verkjatöflur og sendur heim. Síðan þá hef ég tekið nokkrum framförum þó svo að ég hef ekki séð mér fært að fara aftur til vinnu, ég vona þó að það hafist fyrir vikulok.
Þetta ár hefur verið eitt það versta í slysasögu minni, byrjaði í veiðivötnum með klemda taug, því næst tók við bólgið andlit eftir að hafa fengið bolta í andlitið 3 skiptum of oft og svo þetta helv...
Ég ætla rétt að vona að næsta ár verði betra eða allavega ekki verra