Danaveldi

21.01.2009 15:22:41 / tage

Borðum matinn

Hvernig má það vera að við íslendingar stöndum enn í þeim sandkassaleik að grýta stjórnendur landsins með matvöru í stað þess að fylla ísskápinn og vinna sig útúr þessum vandræðum.

Ég er nokkuð viss um að þeir sem komu okkur í þessa fallbaráttu séu allveg að gera sér grein fyrir því að ósætti er meðal þjóðarinnar í þeirra garð og ekki gleyma því að þú ert búinn að drekka á þessu fylliríi líka.

Við verðum öll að hjúkra hænunni


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2009 19:53:56 / tage

Draumalandið

Ég vaknaði upp með bros á vör í morgun enda hafði fæðingin gengið með eindæmum vel ???

Nei Svanhildur er ekki búin að eiga, heldur átti ég nokkra stund í heimi drauma sem fór með mig í gegnum fæðinguna. Í þessum draumi sem öllum þeim sem mér hefur dreymt um ófætt barn okkar hjóna þá hefur það verið drengur.

Ekki veit ég hvað maður skal trúa í þeim málum enda hef ég sagt í nokkurn tíma að þetta sé stúlkubarn og hef ég ekki haft rangt fyrir mér í 6 skipti í röð.

Ólafur Draumur


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.01.2009 21:29:42 / tage

Kreppa allra landsmanna

Enn einn túrinn, stúrinn, olíu á skúrinn er erfitt nema fyrir fjandans aura fá. Já þetta er vel að orði komist. Ég hef lítið bloggað eftir að kreppa fór um skóinn af þeirri einu ástæðu að lífið hefur forgang enn ekki tilbúinn heimur vef-rita.

Nú þegar lífið er komið á réttan kjöl getur maður farið að eyða tíma í tilgangslausar bloggfærslur sem skilja væntanlega ekkert eftir sig nema aulahroll. Ég stefni á að koma með nokkra fréttapunkta hér inn á næstu dögum og vikum, einnig verð ég að lýsa fyrir ykkur meðgöngu "okkar" hjóna.

Þá kættist Magga ofsalega og hélt  sín  jól


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 12:54:25 / tage

Gamall langt fyrir aldur fram

Þetta hefur verið erfið vika því á sunnudaginn gekk ég endanlega frá bakinu á mér. Þannig standa mál að ég hef verið að vinna sem smiður sem hefur kostað nokkra þreytu í blessaða bakinu á mér.

Svo fór ég að keppa í handbolta á sunnudaginn og eftir allveg 2 mín. lagðist ég til jarðar fastur í 90° beygju. Svanhildur kom að sækja drenginn og fór með mig á Gentofte spítala þar sem mér var gefið 6 verkjatöflur og sendur heim. Síðan þá hef ég tekið nokkrum framförum þó svo að ég hef ekki séð mér fært að fara aftur til vinnu, ég vona þó að það hafist fyrir vikulok.

Þetta ár hefur verið eitt það versta í slysasögu minni, byrjaði í veiðivötnum með klemda taug, því næst tók við bólgið andlit eftir að hafa fengið bolta í andlitið 3 skiptum of oft og svo þetta helv...

Ég ætla rétt að vona að næsta ár verði betra eða allavega ekki verra

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 14:04:55 / tage

Leitin að gullinu

Legusárið er farið stækka og andlegt heilbrigði liggur á bláþræði. Ástæða þessa kvíða og líkams ástands er atvinnuleysi. Nú er ég búinn að sækja um svo margar vinnur að ég er að verða uppiskroppa með fyrirtæki til að sækja um í.

Ég er búinn að sækja um vinnu sem byggingafræðingur, smiður, garðyrkjumaður, skúr-ari, leikskólameðhjálpari, bílstjóri, verksmiðjuvinnu, lager, þjónn, tækni-teiknari og margt fleirra. Einnig hef ég skráð mig á nokkrar vikar stofur sem virka þannig að hringt er í mann ef að aðstoð vantar í hverju sem er.

Ég óska hér með eftir hjálp við að finna nýja vinnumöguleika til að sækja um því ég er að verða tómur.

http://www.financial-spread-betting.com/images/unemployed.gif

» 7 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 11:04:29 / tage

Juleøl fram að páskum

Þá er komið að J-deginum, dagur sem Tuborg jólabjórinn er kominn á markað. Hefðin er að klukkan 20:59 keyra trukkar um stræti danaveldis banka uppá flestum bjórdrykkjustöðum og gefa öl.

Ég stefni á að mæta tímanlega á einn af þessum stöðum og hitta fyrir skólafélaga mína.

http://www.gugge.dk/ol/DK/images/dk_tuborg_julebryg_350.jpg

ps. Ég er ekki frá því að ég hafi skrifað sömufærslu fyrir einu ári síðan :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 17:41:27 / tage

Betra að vera ríkur

Ég ætlaði að byrja á að skrifa um hversu leiðinlegt væri eflaust að vera ríkur og hættur að vinna langt fyrir aldur fram. Svo fór ég að velta þessari skoðun minni á milli handa mér og komst að því að þetta er bara vitleysa í mér.

Þegar maður er ríkur þá kaupir maður sér bara eitthvað að gera, fer á skíði á Dubai, inni-sólaströnd í Þýskalandi og fær sér brasilískt vax í brasilíu. Þannig að ég er hættur við að verða ekki ríkur og hætta að vinna langt fyrir aldur fram, reyndar er ég á góðri leið með að þurfa að vinna fram til lokadags þessa lífs til að verða ríkur, ef að ég fæ þá vinnu.

Kveðja Óli T.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 23:51:58 / tage

Herra óléttur

Við hjúin áttum góðar samræður hér fyrr í kveld þar sem við rendum yfir nokkrar blaðsíður í vafalaust góðri óléttu bók. Þessar blaðsíður fjölluðu um hliðar-verkanir sem óléttan getur orsakað.

Eftir að hafa lesið þessar síður kom í ljós að ég þjáist af flestum þessum kvillum og jafnvel fleirum enn Svanhildur. Sem dæmi um erfiðleika sem ég er að berjast við eru, erfiðleika með svefn, bakflæði, þreytu, bakverki, skapsveiflur, (bjór)bjúg og margt fleirra.

Já það er ekki tekið út með sældinni að vera herra óléttur

http://blog.oregonlive.com/qpdx/2008/04/hairy-pregnant-belly.jpg
Þetta er samt ekki ég :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 21:33:03 / tage

Home alone

Þá er Svanhildur loks að koma heim frá Íslandi eftir 5 daga ferð til Íslands. Ég er búinn að fá allveg nóg af því að vera einn heima og vona að það sé lang þangað til næst.

Ég er ekki búinn að gera neitt eða nánast ekki neitt síðan að hún fór. Ég fór í heimsókn til Jónas-ar og Lísu og hélt áfram að sækja um vinnur. Annars er ég búinn að horfa á sjónvarpið og vera í tölvunni og er áhorfið búið að vera svo mikið að ég get vel séð mig lifa án sjónvarps og tölvu næstu 10 árin.


http://mkeshtaa.googlepages.com/alone2.jpg


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 18:51:05 / tage

Myndir

Nú hef ég sett nýjar myndir inn og flokkast þau í 3 albúm.

1. http://picasaweb.google.com/Danaveldi/080831SumarSlandi#

2. http://picasaweb.google.com/Danaveldi/080916JNasOgLSaGestirOgHelsingborg#

3. http://picasaweb.google.com/Danaveldi/080929LiSlandi#

Vonandi hafið þið gaman að þessu !!!!!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 20:09:29 / tage

Gleðilega kreppu og farsælt komandi gjaldþrot

Nú er tími til góðra ráða því mér sýnist kreppan ætli að vera samferða okkur um nokkra stund.

Hvað gerir maður ?
- Maður byrjar allavega á því að fara í Bakken í stað Tivoli því að það er frítt inn í Bakken
- Download-ar myndum í stað þess að fara í bío eða taka leigumyndar
- Bruggar slæmt vín í stað þess að versla á almennum markaði
- Maður fer með dósirnar í endurvinnslu og tekur jafnvel þær sem falla til á leiðinni
- Fer með alla gömlu lottó miðana og tekur út 127 krónurnar
- Tekur upp hjólið og selur fjórða bíl fjölskyldunar
- Fara með börnin á auka æfingar svo þau verði örugglega atvinnumenn
- Fara í berjamó
- Hætta að leika sér að matnum (hestafólk)
- Sleppa stöð 2, stöð 2+, stöð 2 sport 1,2,3,4,5, stóð 2 bíó sport 2 sýn :)
- Borðar allan matinn á disknum
- Hættir að styrka málefni þar sem þú veist ekki hvar peningurinn endar

Þetta eru bara nokkrir punktar og væri gaman að heyra hvort að þú hafir einhverju við þetta að bæta.

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 19:54:07 / tage

Tár í myrkri

Efnahagur námsmanna erlendis getur ekki verið góður og er það mín trú að stór hluti þeirra sem eru í námi erlendis hrökklast úr námi og snúi aldrei að bókunum aftur. Hvort sem það er góð eða slæm þróun verður hver að meta fyrir sig.

Kannski er betra að við komumst niður á jörðina og endurheimtum gamla Ísland, vinnum í þjónustustörfum og njótum lífsins án alls þess munaðar sem við höfum notið á síðastliðnum árum. Einmitt !!!! Maður sér það gerast.

Allaveg höfum við verið að finna fyrir því að vera ekki með danskar tekjur og höfum þurft að millifæra okkar íslensku námslán til DK. sem fer illa með budduna.

Dæmi: Fór með bílinn í 30.000 km skoðun í morgun og kostaði það 3.500 DKK sem þýðir 70.000 Ískaldar krónur


http://mbl.is/img/utlit/vidskipti/myntbreytir/fanar/DKK.gif  Dönsk Króna DKK 20.519 kr.

Þeir sem láta sig svo hafa það að halda námi áfram á framlagi ríkis munu lenda í endalausri skuldasúpu þegar námi líkur, eðlileg námslán hér úti eru sirka 450.000 þúsund á önn og þegar tillit er tekið til gengis mun þetta vera 1.2 - 1.3 kúlur fyrir aðeins eina önn.

Ég segi því við alla þá sem þora ekki framúr á morgnana.

Taktu slátur þú þarft á því að halda.


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 10:04:21 / tage

Þreyta og bleyta

þá er ég kominn "heim" til Trørød eftir magnaða ferð á Ísland þar sem ég lagði upp með að vera ekkert að heimsækja fólk heldur aðeins að sinna löngun minni til að gæsaveiða.

Ég mætti á flugvöll Leifs við Keflavík á nú-liðnum miðvikudegi klukkan 07:00  þar sem ég hitti fyrir annan Leif sem tók á móti mér. Við tókum daginn eingöngu í gæsaleit og skyndibitafæði. Eftir að hafa runnið á þessa allra helsu staði án þess að fá leyfi til skotveiða fáum við tilboð um að fara með pabba austur á land þar sem fregnir hafa borist af kornstykkjum fullum af gæs.

Það þarf ekkert að fjalla neitt sérstaklega um þá ferð nema að hún var einstaklega vel heppnuð og verður pottþétt farið á þessar slóðir aftur.

http://lh4.ggpht.com/Danaveldi/SOFBE_Sr3SI/AAAAAAAAEHU/CvZMZ2Tv-l0/s800/IMG_2928.jpg
Kornstykki sem við lágum í

http://lh4.ggpht.com/Danaveldi/SOFBIGfaSEI/AAAAAAAAEIE/NARioqfmJaw/s800/IMG_2935.jpg
Fallegt útsýni frá skotpallinum

http://lh6.ggpht.com/Danaveldi/SOFBJ37RO1I/AAAAAAAAEIM/qxe-Lv-SkA8/s800/IMG_2941.jpg
Ég og Leifur með megnið af aflanum eða 40 stk.

http://lh4.ggpht.com/Danaveldi/SOFBK9HnJUI/AAAAAAAAEIU/iBe-x4tNnVE/s800/IMG_2944.jpg
Ég og pabbi með hluta af aflanum en samtalts var aflinn 51 stk.

Hej hej

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 21:34:07 / tage

www.Icelandexpress.is

Ég er búinn að kaupa mér miða heim til Ísland næsta miðv. og verð fram á mán. Ástæða ferðarinnar er gæsaveiði og smá stangveiði vonandi. Einnig ætla ég að mæla mér mót við fjölskyldu og vini.

Hilsen Óli Tage

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 11:22:56 / tage

www.kreppa.is

Þá er ég búinn að vera úti í 15 daga og ekki kominn með vinnu. Ég hef haldið bókhald utan um þær umsóknir sem ég hef sent frá mér og teljast þær nú 68 af þeim eru 60 arkitektastofur og 8 verktakar.

Ég er búinn að fá eitt kannski og ræðst það ekki fyrr enn í lok mánaðarins en það kannski fer eftir því hvort að þeir nái að afla sér fleirri verk á næstu vikum. 

Ég held þó ró minni og er farinn að leita að bráðabirgða vinnu sem ég get stundað þangað til að ég fæ vinnu við það sem ég var að læra. Ég hef talað við nokkra úr bekknum sem ég var í og ekki einn af þeim hefur tekist að fá vinnu.

Þetta er allveg furðulegt að upplifa svona kreppu, atvinnulífið hefur blómstrað frá því að ég byrjaði í unglingavinnunni á sínum tíma og aldrei hefur það tekið mann meira enn 1-2 daga að komast að á góðum stað.

  

Yfir og út


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  25  Alls: 25214
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2010